Barnavagninn

Barnavagninn

Hvað viltu láta gera? Fá þjónustu í takt við Pant, sérþjónustu Strætó bs fyrir hreyfihamlaða, fyrir barnafólk. Einhvers konar sérútbúinn strumpastrætó (Barnavagninn) sem væri með reglulegar ferðir, eða pöntunarkerfi líkt og með leið 29 (Grundarhverfi-Mosfellsbær) sem myndi koma til móts við fjölskyldufólk með ungbarnakerrur, barnavagna, ung börn í bílstólum. Hvers vegna viltu láta gera það? Slík þjónusta myndi auka aðdráttarafl hverfisins og stórbæta þjónustu við íbúa þess. Hverfið líður fyrir það að leið 57 í kerfi Strætó eru langferðabílar/rútur sem eru ekki með aðgengi fyrir barnavagna né barnabílstóla.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið er í öðru ferli í borgarkerfinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til Strætó. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Nauðsynleg athugasemd. Eins og nú er kemst enginn með ýmiss konar aukaútbúnað með reglulegum ferðum Strætó, hvort sem er reglulegu ferðunum né pöntunarþjónustunni

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information