Auka fjölda hraðhleðsustöðva fyrir rafbíla

Auka fjölda hraðhleðsustöðva fyrir rafbíla

Hvað viltu láta gera? Ég vil láta fjölga rafhleðslustöðvum um miðbæinn en einnig yfir höfuð um höfuðborgarsvæðið. Einmitt núna höndlar höfuðborgarsvæðið í kringum 40 hleðslur á hverjum hálftíma, og á sólarhring er það í kringum 2000 hleðslur. Hvers vegna viltu láta gera það? Með vaxandi nauðsyn rafbíla, þarf reykjarvíkurborg að mæta þessum væntingum. Í augnablikinu eru 2899 rafbílar á skrá á höfuðborgarsvæðinu og mun þessi tala fara vaxandi. Að auka rafhleðsustöðvar mun einnig auka áhuga á rafbílum til almennings, og mun það bæta stöðu íslands í loftslagsmálum.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Fjölgun og uppbygging hleðslustöðva í borginni er í ferli annars staðar í borgarkerfinu og verður hugmyndum um staðsetningar hleðslustöðva komið áfram sem ábendingum í þá vinnu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information