Göngu og hjólastígur umhverfis Geldinganes

Göngu og hjólastígur umhverfis Geldinganes

Hvað viltu láta gera? Væri gang/hjólastígur utan um Geldinganesið ekki geggjuð útivistarperla fyrir borgarbúa, myndi jafnvel nýtast á veturna sem skíðagönguleið, held að yrði mjög vinsælt útivistarsvæði og yrði eflaust vinsælla en Gróttan held ég, það þyrfti eflaust að gera bílastæði einhversstaðar nálægt fyrir aðra borgarbúa en okkur Grafarvogsbúa. Hvers vegna viltu láta gera það? Vannýtt útivistarperla í höfuðborginni

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessa verkefnis er of langur fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt. Svipuð hugmynd var ein af efstu fimm hugmyndunum í Grafarvogi og komst áfram í kosningu sem verður haldin næsta haust. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information