Göngubrú yfir Miklubraut gegnt gamla 365 húsinu

Göngubrú yfir Miklubraut gegnt gamla 365 húsinu

Hvað viltu láta gera? Göngu og hjólabrú Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auk öryggi gangandi og hjólandi. Auk þess gæti umferð flætt betur.

Points

auka öryggi gangandi og hjolandi. það er löng bið a ljosunum að komast yfir

👍🏻

Ég tek undir heils hugar það sem Harpa Helga sagði. Það er fyrir löngu kominn tími á þetta

Mikill fjöldi barna í Háteigssk. fer svo til daglega þarna yfir í Valsheimilið enda frístundarútur bara fyrir þau yngstu og engar strætisvagnaferðir. Þá sækja börn úr Hlíðaskóla til að mynda í tónskóla/ballett/fleiri tómstundir um eða í kringum Skipholtið og allt inn í Laugardal. Veit ekki til þess að strætisvagnaleiðir séu beint þar á milli! Þá er Ísaksskóli næst við m tilheyrandi gangandi umferð. Ljósin bjóða hættunni heim því þau eru svo seinvirk og forgangsakrein gerir þau enn hættulegri

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information