stifluhringurinn

stifluhringurinn

Hvað viltu láta gera? Mála merkingar á göngustígin á stífluhringnum Hvers vegna viltu láta gera það? Stórhættulegt að ganga eða hjóla . Búin að reina að benda á þetta áður það er geinilega verið að bíða eftir slysi

Points

Málaðar merkingar fækka ekki þeim sem eru á ferli og minnka því ekki slysahættu. Einmitt ætti frekar að sjá til þess að sú lína sem er núna til staðar og bara tæplega sjáanleg sums staðar á leiðinni yrði fjarlægð. Þar með er öllum ljóst að einföld hægri regla gildir og misskilningur og ruglingur út af línu sem sést illa og bara á sumum stöðum mun vonandi heyra sögunni til. Svo þarf auðvitað bara að setja aðskilinn hjólastíg þarna eins og annars staðar í Elliðaárdalnum

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Aðskildir hjóla- og göngustígar eru í samræmi við deiliskipulag Elliðaárdalsins og verður framkvæmt í áföngum á næstu árum. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information