Ærslabelgur í miðborgina!

Ærslabelgur  í miðborgina!

Hvað viltu láta gera? Setja loftbelg til að börn sem heimsækja miðborgina geti hoppað og skoppa :) Hvers vegna viltu láta gera það? Gaman að skoða miðbæ með börnum og fara á stað sem dvelja smá stund og hitta önnur börn. Óháð efnahag svo það það þarf að vera gjaldfrjálst. Má vera í Lækjarbrekku þar sem taflstéttin var eða við tjörnina þar sem leikskólin er (Tjarnarborg og skáldið) eða Hljómskálagarði. Gaman að vera með þetta sjáanlegt.

Points

Þetta heitir Ærslabelgur víst, en já, ég er 100% sammála

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Miðborgar á miðvikudaginn þann 14. apríl milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/465260328253674. Hugmyndin hefur verið aðlöguð og sameinuð við aðrar hugmyndir um ærslabelgi þar sem að ýmsu þarf að huga þegar verið er að velja staðsetningu ærslabelgja. Horfa þarf til fjarlægðar frá íbúðarhúsnæði, hávaðamengunar og aðgengis. Þarf að vera á opnu svæði í borgarlandi og nóg rými og pláss fyrir belginn. Svæðið þarf að vera tiltölulega slétt, ekki í halla, og jarðvegur má ekki vera grýttur. Staðsetningar sem voru lagðar fram í hugmyndum verða skoðaðar m.t.t. ofangreindra þátta. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem var valin og verður þannig á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferlisins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information