Hvað viltu láta gera? Ég myndi vilja að Árbæjarsafnið verði flutt í Hljómskálagarðinn. Hvers vegna viltu láta gera það? Þessi fallegu gömlu hús fengju alveg nýtt líf á sannarlega þeim stað þar sem mannlíf og þesskonar hús voru hér í kringum aldamótin 1800-1900. Í mínum huga aldrei spurning. Væri hægt að setja upp nýtt "grjótaþorp" við tjörnina. Kaffihús þar myndu blómstra og mannífið einnig. Árbæjarsafnið að mínu áliti er ekki góð staðsetning fyrir þessa merkilegu sögumenningu okkar. Veitingastaðir, fallegir steinstígar, reiðstígar og hugguleg veitingahús í gamla stílnum. Rjómatertur, súrmatur og fleira. Takk.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation