Kaffihúsakjarna a Icebón lóðina Rofabæ

Kaffihúsakjarna a Icebón lóðina Rofabæ

Hvað viltu láta gera? Opna kaffihus, setja upp leiktæki, ærslabelg, fá Brikk bakarí eða Huppu ísbúð í hverfið. Þar væri hægt að hafa bókastand með gefins notuðum bókum (þú tekur eina og setur aðra í staðinn sem þú ert búinn að lesa). Útikaffihúsi í góða veðrinu á sumrin. Hvers vegna viltu láta gera það? Það vantar alveg svona svæði í hverfið, eina kaffihúsið er Árbæjarbakarí sem lokar klukkan 18 og eina isbuðin er Skalli sem er því miður með hræðilega vondan ís í vél. Krakkar gætu leikið sér fyrir utan, hægt væri að hafa borð og stóla úti á góðviðrisdögum.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information