Útiskautasvell í Hljómskálagarð

Útiskautasvell í Hljómskálagarð

Hvað viltu láta gera? Aðstaða til skautaiðkunar utandyra á opnu svæði í Hljómskálanum, t.d. í grennd við aparóluna/leiksvæðið. Útbúin yrði skautaaðstaða sem yrði nothæf í litlu frosti eða með aðstoð frystibúnaðar, líkt og á Ingólfstorgi. Hvers vegna viltu láta gera það? Útiskautasvell þekkjast víða í borgum erlendis. Við höfum Tjörnina sem því miður leggur ekki nema í samfelldu frosti yfir tiltölulega langan tíma. Svellið á Ingólfstorgi er svo lítið að þar er illa hægt að skauta svo vel sé auk þess se það er bara opið í desember. Sjá má fyrir sér að skapa mætti stemmningu á útiskautasvelli í Hljómskálagarði í skjóli trjánna yfir vetrarmánuðina. Þangað gæti fólk mætt með eigin skauta eða leigt.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information