Hverfisstorg fyrir neðan Grímsbæ

Hverfisstorg fyrir neðan Grímsbæ

Hvað viltu láta gera? Ef það er eitthvað sem maður heyrir að fólki finnist vanta í hverfið þá er það staður til að hittast á, setjast niður, fá sér hressingu og njóta. Mér datt í hug hvort það væri ekki hægt að gera torg neðan við Grímsbæ þar sem að gæti verið aðstaða til að tylla sér, svið fyrir litla tónleika eða uppákomur og aðstaða fyrir matarvagn/a o.frv. Þarna væri hægt að búa til skemmtilega hverfisstemmningu. Eldofninn gæti líka þjónustað þetta svæði á góðviðrisdögum, sem og mögulega önnur fyrirtæki í Grímsbæ. Virkni torgsins væri ekki einungis bundin við sumartímann því þarna yrði frábært að vera með t.d jólastemmningu á aðventunni. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er nákvæmlega það sem mér finnst vanta í hverfið. Staður fyrir fólk til að hittast, menningarviðburði innan hverfis o.s.frv. Þarna er mikil veðursæld, þetta er miðsvæðis í hverfinu og algjörlega vannýtt svæði í dag.

Points

Frábær hugmynd. Það væri gaman að hafa stað sem hægt er að safnast saman á og njóta útiveru, matar oþh.

Frábær og þörf hugmynf

brilljant hugmynd, algjörlega þörf og væri skemmtileg viðbót í flott hverfi!

Orð í tíma töluð!

Frábær hugmynd, einmitt það sem vantar.

Frábær hugmynd og einmitt það sem vantar í annars fullkomið hverfi :)

Frábær hugmynd! Myndi hleypa jákvæðu lífi okkar hverfi.

Vantar hjarta í þetta frábæra hverfi þar sem fólk getur komið saman.

Ótrúlega góð hugmynd! :)

Góð hugmynd

Svo sammála, frábær hugmynd!!

Góð hugmynd, eins og svæðið er í dag er það óaðlaðandi.

Frábær hugmynd og eitthvað sem hverfið ætti að hafa.

Geggjuð hugmynd !

Styð þessa hugmynd heilshugar, myndi passa frábærlega inn í hverfið okkar.

Frábær hugmynd👌

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var sameinuð við 1 af efstu 5 hugmyndunum í hverfinu og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hinum hugmyndum hverfisins verður stillt upp á íbúaráðs Háaleitis og Bústaða á fimmtudaginn næstkomandi þann 6. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á Facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/202843634962715. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt sem fram munu fara næsta haust fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem verður á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information