Hrein borg

Hrein borg

Hvað viltu láta gera? Setja niður stórar einingar í miðborginni, sem taka við sígarettustubbum, þar sem þeirra er þörf. Væntanlega detta þar líka niður nikótínpúðar og tyggjó. Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna sóðaskapar fyrst og fremst . Hægt er að finna yfir 30 stubba á einum fermetra. Það er rosalega mikið um nikótínpúða út um allt og mikið um að tyggjói sé hent á gangstéttir borgarinnar. Nikótíntyggjóið er allra verst, segir sá sem hefur fjarlægt 34.705 tyggjóklessur af gangstéttum Reykjavíkurborgar.

Points

Við eigum að hlusta á þennan mann sem fórnar tíma sínum í þágu borgarbúa og fegrunar Reykjavíkur. Hann er að benda á sóðaskap sem er okkur öllum til skammar. Styð þessa tillögu 100%.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar og verður tekin til skoðunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information