Stígana í hólmanum milli Elliðánna vantar ofaníburð.

Stígana í hólmanum milli Elliðánna vantar ofaníburð.

Hvað viltu láta gera? Stígana í hólmanum milli Elliðánna vantar ofaníburð og að losna við hjólandi umferð. Hólminn nær frá Vesturlandsvegi uppað Höfðabakka. Í meðfylgjandi línum er ég ekki að fjalla um melbikuðu vegina á hólmanum. Það liggur einn stígur upp með austari Elliðaránni og annar stígur upp með vestari Elliðaránni, síðan tengja 7 til 10 stígar þessa tvo stíga. Austari stígurinn er 2 til 7 fet á breidd en sá vestari er 2 til 5 fet. Tengi stígarnir eru flestir 2 fet en sá breiðasti er um 5 fet. Fæstir þessara stíga eru með ofaníburði og verkefnið snýst um að það verði sett lágmarks þykkt (2 til 3 tommur) af ofaníburðu á þessa stíga og að stígarnir verði örlítið kúftir. Ég legg áherslu á að þessum stígum verði ekki breytt, hvorgi legu eða breidd. Þessi framkvæmd ætti að vera unnin af unglingavinnunni, en það ætti að gerast með skóflum og hjólbörum, þá þyrftu unglingarninr að hafa aðgang að ofaníburði sem væri staðsettur annarsvegar að austanverðu, við brúna sem er fyrir neðan gamla orkuverið og hinsvegar að vestanverðu, við efstu göngubrúna, það ligga akvegir að báðum þessum stöðum. Hvers vegna viltu láta gera það? Í vætutíð eða hlíindum að vetri, þá getur maður ekki gengið um hólmann á venjulegun gönguskóm sér til ánægju, vegna þess að stígarnir eru eitt drullu svað.

Points

Hólmurinn er slík náttúruparadís, í miðri höfuðborginni, að það ætti að auðvelda gangandi fólki aðgang í hvaða veðri sem er.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Árbæjar og Norðlingsholts á miðvikudaginn næstkomandi þann 28. apríl milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/730082194357926/. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information