Útsýnisskífa uppá Vatnshól sem og tröppur vestanmegin

Útsýnisskífa uppá Vatnshól sem og tröppur vestanmegin

Hvað viltu láta gera? Setja útsýnisskífu uppá Vatnshól með helstu byggingum Reykjavíkur og fjöllum. Leggja tröppur upp hólinn vestanmegin til að auðvelda aðgengi þangað upp. Hvers vegna viltu láta gera það? Frá Vatnshólnum er útsýni yfir alla Reykjavík - ókeypis. Aðgengi uppá hólinn þarf að bæta svo allir komist þangað upp. Börnin tala um hólinn sem hjartað í hverfinu. Hann dregur að sér börn jafnt sem fullorðna frá sólarupprás til sólseturs. Hann er fullkominn staður til að njóta norðurljósanna enda ofar ljósastaurum. Hóllinn er heimsóttur af skólakrökkum í hverfinu bæði á skólatíma og utan. Hann er sleðabrekka, hann er jógastudío, hann er ballettsalur, hann er uppspretta endalausra ævintýra. Útsýnisskífa og tröppur auka enn á aðdráttarafl Vatnhólsins.

Points

Útsýni frá Vatnshólnum er dásamlegt. Nauðsynlegt að hafa tröppur til að auðvelda aðgengi.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information