Nýr eða nýir hverfiskjarnar í Hlíðarnar

Nýr eða nýir hverfiskjarnar í Hlíðarnar

Hvað viltu láta gera? Tillagan er að borgin liðki fyrir eða hvetji til uppbyggingar á nýjum hverfiskjarna eða -kjörnum í Hlíðunum. Hugmyndin er að heppilegur reitur eða reitir í hverfinu séu skipulagðir með það fyrir augum að þar geti þrifist starfsemi sem auðgar mannlífið í hverfinu og styttir vegalengdir. Það er m.a. til staðar áhugi fyrir því að opna kaffihús í Hlíðunum sunnan Miklubrautar, en það er skortur á heppilegu húsnæði fyrir slíkt á svæðinu. Það væri hollt fyrir hverfið á fá valkosti um bakarí og matvöru, kaffi-/veitingahús, og ef til vill smærri skrifstofurými og sérhæfða þjónustu í hverfið. Einn valkostur um staðsetningu á slíkum kjarna væri á hornreitnum milli MH og Hlíðaskóla. Hann væri einnig vel staðsettur gagnvart suðurhlíðunum handan Bústaðarvegar, sem og nýrri uppbyggingu á Veðurstofureitnum. Einnig væri hægt að opna fyrir mögulega uppbyggingu (á smáan og hverfisvænan hátt) á horni Stakkahlíðar og Miklubrautar, sem og þar sem nú er vesturhluti bílastæðisins við Klambratún. Einnig væri hjálplegt að skipuleggja Skógarhlíð með nýjum hætti. Sjá myndir til glöggvunar. Hvers vegna viltu láta gera það? Skortur á valkostum og möguleikum fyrir þjónustu í hverfinu, sökum skorts á heppilegu húsnæði. Þetta gæti auðgað mannlífið og stytt vegalengdir íbúa.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information