Breyta hraðahindrun í gangbraut við Safamýri

Breyta hraðahindrun í gangbraut við Safamýri

Hvað viltu láta gera? Breyta hraðahindrun sem er staðsett við efstu blokkirnar í Safamýri í gangbraut. Eða amk hafa umferðarspegil sem sýnir ''blind spot'' við gangstéttina, blokkar megin í Safamýrinni. Hvers vegna viltu láta gera það? Á hægri hlið hraðahindrunarinnar eru bílastæði sem eru nánast alltaf í notkun, bílar sem eru lagðir þar skyggja verulega sýn ökumanna fyrir gangandi vegfarendum þarna yfir. Börn og ungmenni nota þessa hraðahindrun oft til að komast leiðar sinnar yfir í Miðbæ. Ég hef tekið eftir því mynstri bæði sem íbúi/ökumaður í hverfinu til margra ára ásamt því að ég gerði þetta sjálfur þegar ég var lítill og bjó þarna nærri. Þetta mun líklega leiða af sér slys í núverandi mynd. Annar punktur er umferðin sem hefur fært sig inn í Safamýri á háannatíma undanfarin ár. Þarna virðast margir keyra í gegn til að stytta sér leið og það myndi bæta lífsgæði og öryggi íbúa að vera í rétti til að komast þarna leiðar sinnar með gangbraut í stað núverandi fyrirkomulags. Einnig fælir þetta óþarfa umferð úr Safamýrinni sem er til bóta fyrir íbúa.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information