Völundarhús í Öskjuhlíð

Völundarhús í Öskjuhlíð

Hvað viltu láta gera? Hugmynd mín fyrir Hverfið mitt væri að búa til nokkur völundarhús í borginni. Mig langar aðs já eitt efst í Öskjuhlíðinni. Hvers vegna viltu láta gera það? Á Ítalíu, þar sem ég ólst upp, hef ég séð mörg völundarhús og mig langar að sjá nokkra hér á Íslandi líka, sérstaklega fyrir börn, en einnig fyrir fullorðna. Mér finnst þetta frábær upplifun af leik og vexti fyrir alla. Hvað varðar efnin, þá mætti byggja þau úr tré, trjábolum, þá myndu þau kannski þurfa minna viðhald en völundarhús grænna limgerða. Varðandi teikninguna þá gæti hún verið eitthvað sem tengist íslenskri fornsögu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information