Endurnýja runnabeð og gróðursetja tré og berjarunna*

Endurnýja runnabeð og gróðursetja tré og berjarunna*

Hvað viltu láta gera? Hugmynd 1: Taka gömlu plönturnar sem eru í beðinu, og gróðursetja nýjar, ásamt nýrri gróðurmold. Gróðursetja nýjar ; tré og runna - bara runna - bara rósir - eða bland af 2 tegundum. Beðið er ekki langt og þess vegna væri betra að hafa tegundirnar fáar . Það kæmi vel út að setja myndarlega steina við sitt hvorn endann á beðinu, eða bara austur endann sem skjól fyrir plönturnar Hugmynd 2: Gróðursetja tré og berjarunna á spildunni sín hvoru megin við Hofsgrund frá hringtorginu í vestur átt. Setja tré niður í þyrpingum sem skarast, EÐA í línum. 1.Trjálína 2.berjarunnar 3. trjálína 4. berjarunnar og svo framvegis.Hafa þéttari gróðursetningu sunnan við veginn ( þar er stærra svæði ) en hafa tré/runna með góðu millibili norðan við götuna. Óþarfi er að búa til beð í kring um trén ( það kallar á mikla umhirðu )en setja berjarunnana (rifs - og sólber) í beð. Reynitré dafna vel hér í hverfinu og öspin er líka fín. Gróðursetja nokkuð þétt, en skilja eftir pláss fyrir gangstétt, sem hefur enn ekki verið lögð. Skýla svo gróðrinum með einni léttri girðingu sem kæmi næst hringtorginu, sem stæði fyrstu árin. ( 2-3 lágrétt timburborð ca. 1 metri á hæð ).Þessi skýling sést víða og er mikil stuðningur fyrir plönturnar . Hvers vegna viltu láta gera það? Hugmynd 1: Beðið er við framhlið ( s-hlið ) samkomustaðar okkar ,Fólkvangs og skrifstofu sóknarpests. Þetta var fallegt beð, en kominn tími á endurnýjun.Mikið gras er komið inn um alllar plönturnar,og þær úr sér vaxnar, að mestu. Hugmynd 2: Í NA og A vindáttum koma feiknaharðir strengir niður alla Hofsgrundina.Þetta er opið svæði.Gróðurinn myndi lægja vindinn töluvert .Það er ekki eitt einasta tré á þessu svæði. Allur gróður á erfitt uppdráttar hér vegna skjólleysis. Þetta yrði partur af skjólmyndun í hverfinu og fegrar svæðið heilmikið. *Sameinuð hugmynd úr eftirfarandi hugmyndum: Snyrta / endurnýja runnabeðið f.sunnan Fólkvang: https://betrireykjavik.is/post/39094 Gróðursetja tré og berjarunna frá Hringtorginu í vestur: https://betrireykjavik.is/post/39085

Points

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information