Hvað viltu láta gera? Vaðlaug á Klambratún eins og er í Laugardal og í Hljómskálagarði Hvers vegna viltu láta gera það? Vaðlaug er falleg og hún er líka nytsamleg, það væri dásamlegt að geta farið með börn að vaða á þessum fallega stað. Gott tækifæri fyrir efnaminni að geta farið með nesti í garðinn og leyft börnum að vaða, það er orðið svo ansi dýrt í sund. *Hugmynd sameinuð við Tjörn á Klambratún: https://betrireykjavik.is/post/29495.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation