Lýsing á göngustíg neðan Staðahverfis*

Lýsing á göngustíg neðan Staðahverfis*

Hvað viltu láta gera? Setja lága ljósastaura meðfram göngustíg milli golfvallar og fjöru í Staðahverfi Hvers vegna viltu láta gera það? Vinsæl göngu- og hjólaleið í Grafarvogi og vantar lýsingu. Hugmynd sameinuð við: *Göngustígslýsing fyrir neðan Staðahverfi: https://betrireykjavik.is/post/38520.

Points

Vill alls ekki fá ljósmengun þarna, vil geta komi í fjöruna og notið myrkurs eða tunglsljóss. Nóg af öðrum upplýstum stígum til að hjóla og ganga.

Alls ekki lýsingu á þennan stíg. Þarna er hægt að njóta norðurljósa og kyrrðar. Það er hægt að hlaupa eða labba upplýstan stíg fyrir ofan og inni í hverfinu. Hins vegar mætti laga þennan stíg, svo auðveldara sé að ganga eða hjóla hann.

Við höfum ljósmengun allt í kringum okkur. Þetta er einn af fáum stígum þar sem hægt er að njóta norðurljósana, tunglskynsins og stjarnanna í Borginni. Auk þess er Blikastaðakróin, svæðið á milli Geldinganes og Blikastaðanes skilgreint sem vendarsvæði með fjölbreyttu fugla og dýralífi sem vert er að vernda. Þetta er ein af perlum Borgarinnar sem vert er að vekja athyggli á.

Ég er á móti. Það er svo mikil ljósmengun í Reykjavík fyrir. Ef þú gengur þarna í myrkri og ekki skýjað. Þá sérðu norðurljós, stjörnur, friðarsúluna. Væri samt gott kannski að fara millileiðina. Lága staura með hreyfiskynjara? En það væri örugglega talið of dýrt...

Þetta er einn af fáum göngustígum í borginni sem er ekki nálægt annari ljósmengun. Það væri synd að skemma þetta svæði fyrir þeim sem vilja skoða næturhimininn. Það er nóg af öðrum upplýstum stígum í Grafarvogi. Leyfum þessum að njóta sinnar sérstöðu.

Á móti þessu, það má einhvesstaðar vera myrkur, ljósmengun þarna mundi skemma náttúruupplifunina og erfiðara væri að njóta td norðurljósanna.

Ég er svo sammála! Mér finnst til skammar hversu léleg lýsingin er yfir höfuð í Staðarhverfinu og að það skuli vera talið eðlilegt að ganga um með höfuðljós þegar dimma tekur.

Sérstaða þessarar gönguleiðar er einmitt að það er lítið að ljósum frá umhverfinu og hægt að fylgjast með umhverfinu og himninum. Ég hef hlaupið þarna á öllum tímum dags í ýmsum veðrum og birtuskilyrðum og aldrei orðið fyrir óþægindum af umhverfinu. Vel sést til allra átta, enda engin tré og himininn lýsir upp leiðina, endurvarp á skýjum eða enn betur tungl og stjörnubjart. Mínar eftirminnilegustu ljósastemmingar þarna eru tunglið sem speglast í haffletinum.

Göngustígar í Reykjavík ættu ekki að vera svæði til að njóta myrkurs. Það má gera fyrir utan borgina. Öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á að vega mest!

Ég ætlaði að koma með sömu hugmynd. Frábær gönguleið. Væri gaman að fá ljós þarna enda kolniðamyrkur þegar sólin sest ☺️👏🏼

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information