Gera Hofsvallagötu að Breiðgötu / Boulevard*

Gera Hofsvallagötu að Breiðgötu / Boulevard*

Hvað viltu láta gera? Hugmyndin snýr að því að taka Hofsvallagötu og breyta ásýnd hennar frá horni við Landakot og alveg niður að Ægissíðu. Gróður og tré í miðjunni og aksturstefna í báðar áttir eins og er í dag. Til samanburðar má skoða Sóleyjargötu við Hljómskálagarð, sú gata er borgarprýði. Hvers vegna viltu láta gera það? Hofsvallagata var tekin í gegn fyrir nokkrum árum. Þær breytingar féllu misvel í fólk. Nú er komið að því að taka götuna vel í gegn og gera hana að alvöru kennileiti hverfisins. Við götuna er fjöldinn allur af metnaðarfullri þjónustu, en umhverfið í kring er ekki í samræmi við metnað þeirra sem halda úti þjónustu við götuna. Gangstéttin beggja vegna er illa farin og hjólastígar hættulegir í núverandi mynd, þar sem þeir halla að gangstétt / kantsteinum. Gangstétt og hjólastígar mættu vera sameinað eins og þekkist á t.d. Ægissíðu, Hagamel og fleiri stöðum. *Hugmynd var aðlöguð svo hún gæti verið metin tæk fyrir kosningar. Upprunalega hugmynd má sjá hér: https://betrireykjavik.is/post/32575.

Points

Góð hugmynd nema að hjólastigur þarf að vera aðskilin frá gangstétt. Hjól fara auðveldlega upp í 25 km hraða og eiga ekki samleið með gangandi vegfarendum.

Frábært og löngu tímabært að lagfæra götuna fyrir alla gangandi, hjólandi og bifreiðar

Fáránleg hugmynd sem gengur ekki upp. Alltof þröng gata fyrir þessa hugmynd. Íbúar sem eiga bíla kæmust ekki með bíla að og frá húsum sínum.

Mjög góð tillaga. Ásýnd götunnar má bæta til muna, sbr. Sóleyjargötu og lagfæra hjólastíga og strætóstövar sbr. Lönguhlíð sunnan Miklubrautar. Þá mætti lækka hámarkshraða í 30 alla leið að Ægissíðu.

það má fara alla leið með þessa götu. Ekki kvart leið einsog staðan er í dag.

Myndi fegra götuna. Skapa tengingu á milli Hofsvallagötu beggja vegna Hringbrautar. Það myndi skapa heildræna upplifun.

Mjög góð hugmynd. Mun auka öryggi til muna

Ég ætlaði að leggja inn hugmynd á þessum nótum, en þessi hugmynd er ennþá metnaðarfyllri og þess vegna styð ég hana. Þessi tillaga byggir á heildarsýn fyrir götuna og hverfið, sem mun eflaust styrkja þjónustuna og mannvistina á svæðinu

Fáránleg hugmynd. Börn úr Landakotsskóla ganga Hofsvallagötuna úr og í skóla og í Sundlaug Vesturbæjar. Stunda hlaup um hverfið (meðfram Hofsvallagötu) þar sem engin íþrótta-aðstaða er í skólanum. Auk þess er lægsti aksturshraði við skóla og spítala (Landakotsspítala) samkvæmt umferðarlögum. Ótrúlegt að láta kjósa um þessa hugmynd.

Ég verð að vera sammála Kristínu Huld og Ernu. Mér finnst Hofsvallagatan allt of þröng til þess að breytast í eitthver "Boulevard"! Ég bý við þessa götu og á mjög erfitt með að sjá þetta

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information