Seljatjörn - jólaljós*

Seljatjörn - jólaljós*

Hvað viltu láta gera? Setja hvítar seríur á trén í kringum Seljatjörn. Hvers vegna viltu láta gera það? Þessi paradís í Seljahverfi sem gleður jafnt unga sem aldna er mjög dimm í skammdeginu. Upplýst tjörnin og umhverfi hennar, myndi gera það að verkum að fólk nyti hennar einnig þegar dagsbirtu þrýtur. Tjörnin er auk þess staðsett fyrir framan Seljahlíð sem er fyrir eldri borgara og er ég sannfærð um að upplýst tjörnin myndi gleðja þann hóp sérstaklega, sem gæti út um gluggann á heimkynnum sínum, virt fyrir sér birtuna frá tjörninni og hlýleikann sem ljósunum myndi fylgja. Ljósin mættu síðan vera áfram í mesta skammdeginu og fram á vorið. Upplýst trén gefa íbúum Seljahverfis einnig þann möguleika á að búa til jólastemningu í kringum tjörnina á aðventunni, t.d. með því að bjóða upp á heitt kakó, ristaðar möndlur ofl. *Undirhugmyndir Jólaljós við Seljatjörn: https://betrireykjavik.is/post/29008

Points

Já ekki veitir af að lýsa þetta svæði upp. Mætti hafa þetta upplýst á veturnar

Frábær hugmynd

Fallegt, hlýlegt, lífgar upp á skammdegið.

Æđisleg hugmynd

geggjuð hugmynd, like á þetta

Gleði-lífgar upp á skammdegið

Frábær hugmynd!

Frábær hugmynd :)

Frábær hugmynd - framkvæma strax!

Frábær hugmynd!... myndi aldeilis lýsa upp hérna í hjarta hverfisins. Göngutúrarnir yrði ævintýralegri fyrir vikið. Myndi mæta með heitt kakó um leið! :-)

Frábær hugmynd, myndi gleðja okkur íbúana að fá falleg jólaljós við tjörnina

Mjög falleg hugmynd að lýsa upp hjartað í hverfinu okkar!

Frábær hugmynd og upplífgandi í Covid-19 skammdeginu.

Æðisleg pæling, myndi virkilega poppa upp kvöldgöngutúra í myrkrinu.

Frábær hugmynd. Endilega framkvæma fyrir jólin 2020!

Dásamleg hugmynd. Myndi lífga heilmikið upp á hverfið og göngutúrinn.

Góð hugmynd 👍

Ljós í myrkrinu. Myndi sóma sér vel

Ekki spurning, lýsa upp hverfið.😃

Lýsir upp einstaklega fallegan og vinalegan stað.

Lýsir fallega upp skammdegið. Þetta er fallegt umhverfi sem yrði enn fallegra með flottum ljósum.

Alveg frábær hugmynd!

Frábær hugmynd sem myndi gleðja unga sem aldna👍Verður vonandi framkvæmd fyrir þessi jól 😀

Frábær hugmynd sem myndi gleðja alla og alveg sérstaklega börnin. Veitir ekki af gleði eftir þetta ár ❤️

Frábær hugmynd, verður kósý î myrkrinu.

Myndi lífga upp á miðpunktinn í fallega hverfinu okkar! Framkvæma fljótt ☺️

Frábær hugmynd, það er nauðsynlegt að lýsa upp tilveruna yfir mesta skammdegið og þetta er einföld framkvæmd sem mun gefa mikið af sér til samfélagsins.

Frábær hugmynd!! Þar sem við eigum þessa fallegu perlu, tjörnina, í hjarta Seljahverfisins, eigum við að lýsa umhverfið upp og skreyta með jólaljósum. Var ekki verið að tala um að færa jólastemminguna meira út í hverfi Reykjavíkurborgar þar sem ekki er æskilegt að margir safnist saman í miðborginni á Covit tímum? Hér er tækifærið!! ;-)

Myndi lýsa upp þessa perlu Seljahverfis og gera hana enn fallegri í skammdeginu

Væri æðislegt að fá jólaljós á þessum stað líka núna um jólin, svo dimmt myndi gleðja marga á þessum tímum.

Sammála 100%

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Góð hugmynd. Skapar skemmtilega stemmingu í göngutúrnum. Svo þegar samkomutakmarkanir eru úr sögunni væri hægt að setja upp jólamarkað í sölubásum á grasflötinni, með lifandi tónlist, súkkulaði og piparkökum. Fáum smá miðbæjarstemmingu í hverfið okkar.

Birtir upp myrkrið og tilveruna

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information