Lóðin við Sundlaug Vesturbæjar fyrir alla fjölskylduna*

Lóðin við Sundlaug Vesturbæjar fyrir alla fjölskylduna*

Hvað viltu láta gera? Sundlaug Vesturbæjar yrði stækkuð og þar bætt við rennibrautarlaug með þreföldum rennibrautum eins og er við flestar aðrar sundlaugar á landinu. Lóðin í kringum sundlaugina yrði svo hönnuð sem fjölskyldusvæði með ærslabelg, æfingatækjum, bekkjum, klifurvegg, o.s.frv. Það þarf líka að skilja eftir gott svæði með grasi til að hlaupa á. (það mætti í leiðinni byggja nýja búningsklefa með aðgengi fyrir alla). Hvers vegna viltu láta gera það? Það er lítið af stórum grænum svæðum í Vesturbænum, hvað þá inni í miðju hverfi. Þessi lóð ætti að nýtast öllum. *Hugmyndir sameinaðar við: Community Garden Patches: https://betrireykjavik.is/post/28675 Heildrænt skipulag á grænu svæði við Vesturbæjarlaug: https://betrireykjavik.is/post/38888 Körfuboltavöllur við Vesturbæjarlaug: https://betrireykjavik.is/post/38541.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þessi var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmynd var aðlöguð í samráði við hugmyndahöfund og snýr einungis að lóðinni við sundlaug Vesturbæjar. Stækkun á sundlauginni sjálfri og að bæta við laug rúmast ekki innan fjárhagsramma hverfisins og er skipulagsferill þess verkefnis yrði langur fyrir verkefnið Hverfið mitt. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Mikilvægt skipulagsverkefni!

Líka gera innilaug fyrir sundkennslu og æfingar þá verða allir kátir. Pláss fyrir alla og börn og ungmenni fá þá sundkennslu sem þau þurfa.

Það er lítið af stórum grænum svæðum í Vesturbænum, hvað þá inni í miðju hverfi. Þessi lóð ætti að nýtast öllum íbúum hverfisins.

Það er gamalt loforð frá því að Vesturbæjarlaug var byggð fyrst að það yrði innilaug fyrir sundkennslu.

Þetta hljómar vel! En það er líka nauðsynlegt að byggja laug fyrir kennslu og sundæfingar. Það er löngu hætt að ganga upp að hafa bara tvær sundbrautir lausar fyrir alla sem synda eftir vinnu á virkum dögum.

Innisundlaug til viðbótar þá geta allir synt og b0örn og ungmenni í skóla/æfingarsundi fá sitt pláss og við hin okkar pláss að synda. Snjöll hugmynd að nota lóðina betur.

Èg vil gjarnan fá þarna leiktæki sem ömmur og pabbar, fullorðna fólkið getur líka leikið sér í með börnunum. Þarna má líka vera grillaðstaða, bekkir og borð.

Styð þessa hugmynd og svo er mikil þörf á að byggja innilaug fyrir sundæfingar

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information