Ærslabelg / niðurgrafið trampólín á Klambratún*

Ærslabelg / niðurgrafið trampólín á Klambratún*

Hvað viltu láta gera? Setja Ærslabelg eða niðurgrafið trampólín við eða nálægt leiksvæðinu á Klambratún Hvers vegna viltu láta gera það? Bæta við flóruna í leiktæki á Klambratúni, krakkar elska að hoppa á ærslabelg / tampólíni og væri það kærkomin viðbót fyrir krakkana í hverfinu. *Undirhugmyndir: Ærslabelgur á Klambratún: https://betrireykjavik.is/post/28490 Niðurgrafinn trampólíngarður á Klambratún: https://betrireykjavik.is/post/28509

Points

Það eru ærslabelgir á helstu opnu útivistarsvæðum sveitarfélaga um allt land. Þeir eru afar vinsælir hjá krökkum á öllum aldri. Það er enginn ærslabelgur miðsvæðis í Reykjavík - þeir næstu eru aftan við Kringluna, í Laugardalnum og á Seltjarnarnesi. Það væri frábært að fá einn meira miðsvæðis í göngufæri fyrir allar fjölskyldurnar sem búa í Norðurmýrinni og í Hlíðunum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmyndin hefur verið aðlöguð og verður staðsetning á völdum stað í hverfinu þar sem að ýmsu þarf að huga þegar verið er að velja staðsetningu ærslabelgja. Horfa þarf til fjarlægðar frá íbúðarhúsnæði, hávaðamengunar og aðgengis. Þarf að vera á opnu svæði í borgarlandi og nóg rými og pláss fyrir belginn. Svæðið þarf að vera tiltölulega slétt, ekki í halla, og jarðvegur má ekki vera grýttur. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information