Ljósheimaróló verði samverustaður ungs fólks á öllum aldri til hollrar útivistar

Ljósheimaróló verði samverustaður ungs fólks á öllum aldri til hollrar útivistar

Ljósheimaróló verði styrktur sem hverfisróló og sköpuð þar umgjörð um fjölbreyttan leik allt árið fyrir fólk á öllum aldri. Girðing verði stækkuð um leiktæki f. 6+ sem nú er utan hennar og viðfangsefnum fjölgað enn frekar, þ.a. allir aldursflokkar hafi þar eitthvað við að vera á sameiginlegu leiksvæði.Unglingar biðja um aðstöðu til klifurs, eða þrautabraut svipað og hjá skátum. Eitthvað verði einnig fyrir fullorðna svo sem rimlar t.a. teygja og styrkja eða anna slíkt.

Points

Börn á grunn-og framhaldsskólaaldri hreyfa sig of lítið og eru of lítið útivið. Fátt er við að vera. Með þessu aukast líkur þess að þau fari út að glíma við sjálf sig og þau líklegri til að vilja vera með ungum börnum á róló. Fullorðið fólk situr iðulega og horfir á ungviðið spreyta sig, en með tæki fyrir það, geta foreldrar, afar og ömmur nýtt samverustund og styrkt sig um leið. Þannig styrkist gott svæði enn frekar og nýting þess eykst, sem hverfismiðja og samverustaður fólks á öllum aldri.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information