Það ætti að setja gönguljós á fjölfarna gönguleið við KR heimilið þar sem nú er göngubraut.
Mjög mikil umferð bíla, strætó, gangandi og hjólandi á þessu svæði sérstaklega á morgnanna, en líka eftir að skólum lýkur og fram eftir degi. Mundi auka stórlega öryggi barnanna í umferðinni. Göngubrautin ætti samhliða að flytjast yfir á hraðahindrun við strætóskýlið á Kaplaskjólsvegi sem er líka fjölfarin gönguleið barna.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation