Setja upp beygjulós þar sem beygt er inn frá Strandvegi, þegar keyrt er frá norðri til suðurs, og inn á Hallsveg
Allt of oft hef ég orðið vitni að eða heyrt af slysum við þessi gatnamót. Einnig hefur marg oft legið við slysi á þessum stað. Þeir sem eru að beygja af Strandvegi inn á Hallsveg eru með grænt ljós en eiga að víkja fyrir umferð á móti. Allt of oft beygir fólk beint yfir þessi gatnamót án þess að stoppa og skapar þannig mikla slysahættu fyrir umferð á móti sem á réttinn.
Fer um þessi gatnamót nær daglega og forðast að beygja þarna þegar umferð er mikil. Hef séð marga árekstra þarna. Veit ekki töluna á því hversu oft umferðarljósið í beygjunni af Gullinbrú inn á Hallsveg hefur verið keyrt niður vegna árekstrana. Beygjuljós á þessum stað myndi hiklaust bæta öryggi þeirra sem eru að beygja af Strandvegi inn á Hallsveg.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation