Skilti með götunöfnum í innanverðar götur í Fossvogi

Skilti með götunöfnum í innanverðar götur í Fossvogi

Þar sem umferð gangandi og hjólandi vegfarenda er mikil í Fossvogi og erfitt getur verið að átta sig á því hvaða götu er um að ræða, þegar komið er inn götur frá grænum svæðum/gangstígum. Gott væri ef sett yrðu upp minni skilti með götunöfnum við "löndin" innanverð.

Points

Að merkja götur í Fossvogi með litlum götu(nafna)skiltum myndi auðvelda börnum og öðrum gangandi vegfarendum að átta sig á því við hvaða götu þau væru.

Þetta er frábær hugmynd! Afar mikilvægt og sérstakt í raun að þetta hafi ekki verið gert fyrir löngu!

Þessi hugmynd hefur verið færð í Þín Rödd í ráðum borgarinnar og hægt er að finna hana hér: https://thin-rodd.betrireykjavik.is/post/9092

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information