Það þarf átak í viðhaldi á eldri mannvirkjum í Laugardal öllum, sér í lagi dettur mér í hug ónýt lýsing við stíginn gegnum dalinn milli Fjölskyldu og Húsdýragarðs og Grasagarðsins alveg enda á milli frá malarstæðinu ofan við garðinn og að íþróttamannvirkjum, þessi leið er í nær algeru myrkri á veturna. Sá stígur er líka mjög ósléttur eftir m.a. rætur aspanna sem eru beggja vegna við. Eins er td. stígur í beinu framhaldi af gangstétt frá Hrísateig að Kringlumýrarbraut mjög illa farinn.
Það þarf ekki alltaf að gera eitthvað "nýtt", og það kostar á endanum meira að láta hlutina drabbast niður. Mæli líka með vistvænum ljósgjöfum (LED) þarna í Laugardalinn, sem lýsa NIÐUR og á stíginn en ekki inn í trén eða í allar aðrar áttir (gamla lýsingin skilar engu niður á stíg og flokkast líklegast sem ljósmengun frekar en nýtileg lýsing.
LED-díjóðulýsing er bara svo léleg og dofnar um helming á einu ári og kostar hægri handlegg og fót! En endilega betra viðhald á þessu sem er og stækka svæðið :)
Þessi hugmynd hefur verið færð í Þín Rödd í ráðum borgarinnar og hægt er að finna hana hér: https://thin-rodd.betrireykjavik.is/post/9153
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation