Merkja svæði fyrir hjólandi vegfarendur á Álftamýrinni
Álftamýrin er í raun allt of breið fyrir þarfir bílanna. Talsverð hjólandi umferð er um Álftamýrina, sérstaklega syðri hluta hennar sem er í raun tenging margra íbúa í Háaleitishverfi inn á hjólastíginn meðfram Miklubraut og vestur í bæ.
Þessi hugmynd hefur verið færð í Þín Rödd í ráðum borgarinnar og hægt er að finna hana hér: https://thin-rodd.betrireykjavik.is/post/9093
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation