Bæta lýsingu á leiksvæði Dvergasteins
Lagt er til að lýsing verði bætt á leiksvæði leikskólans Dvergasteinn við Seljaveg þar sem núverandi lýsing dugar ekki til mánuðina nóvember til janúar. Yfir þá mánuði þurfa krakkarnir að vera meira inni við en ef betri lýsing yrði sett upp. Að sögn leikskólastjórnenda myndi dögum sem hægt væri að leika úti við fjölga um u.þ.b. 20 yfir tímabilið.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation