Byggja hundagerði á þessu svæði við Selásbraut sem hefur verið í órækt í fjöldamörg ár. Þarna væri um litla röskun á nærumhverfi að ræða og gerðið yrði nógu langt frá hesthúsahverfinu og reiðstígum til þess að trufla ekki umferð hestamanna.
Bæta þarf aðstöðu fyrir hundaeigendur til þess að vinna á móti lausagöngu og efla ábyrgt hundahald innan borgarinnar. Í Árbæ eru engin hundagerði í boði.
Efast um að íbúar í nærliggjandi húsum yrðu par sáttir. Svo er það alrangt að þetta svæði sé í einhverri órækt. Þetta er íslenskur mói, meira að segja nokkuð laus við lúpínur og annan ófögnuð.
Þessi hugmynd hefur verið færð í Þín Rödd í ráðum borgarinnar og hægt er að finna hana hér: https://thin-rodd.betrireykjavik.is/post/8970
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation