Göngubrú

Göngubrú

Umferð gangandi fólks hefur vaxið töluvert undanfarið sem og bílaumferð sem hefur aukist umtalsvert á Miklubraut. Mig hefur lengi langað að sjá göngbrú yfir Miklubraut rétt vestan við Lönguhlíð og yfir á Miklatúnið þar sem gönguljós eru núna.

Points

Það eru undirgöng rétt hjá...

Það er ekki pláss fyrir göngubrú / undirgöng á þessum stað öðruvísi en að rífa niður hluta af nærliggjandi húsum. Það yrði galið. Það er að vísu rétt að bílar keyri stundum þar yfir á rauðu ljósi. Nær væri að setja upp eftirlitsmyndavélar við gönguljósin sem myndu refsa þeim sem keyra yfir á rauðu. Hvað varðar "umferðarflæðið" þá er enginn heimsendir þótt bílar þurfi að stoppa í 15-20 sekúndur.

Það skiptir máli hvaða aðstæður eru á hverjum stað fyrir sig hvort göngubrýr, undirgöng eða gönguljós verði fyrir valinu. Göngubrýrnar við Kringluna, Skeifuna og fleiri staði eru vel hannaðar og góðar, enda langt á milli húsa þar og nóg pláss. Á Miklubraut við Stakakhlíð / Reykjahlíð eru hinsvegar hús sem standa alveg uppvið götuna sem þýðir að það er minna pláss fyrir hendi þar. Aðgengið að göngubrúnum yrði því ekki eins gott þar. Ef það er yfirhöfuð pláss þar þ.e.a.s.

flæði umferðar verður betra en þetta er ansi umferðaþungur kafli í og úr miðborginni. Næstum því slys myndi örugglega fækka einnig á gönguljósunum.

En það eru samt undirgöng þarna! (Langahlíð/Miklubraut) Ég væri mikið frekar til í að sjá göngubrú yfir Miklubraut hjá 365 eða yfir Hringbraut hjá Háskóla Íslands. Þar eru engin undirgöng fyrir. Finnst það mætti bara merkja undirgöngin betur og fólk ætti að byrja að nota þau meira frekar en að stoppa umferð.

Göngubrú yfir miklubraut hjá klambratúni og þar sem 365 er mundi stórauka öryggi og bæta flæði í umferðini, minka meingun og bensín eyðslu.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information