Fjölskyldusvæði í Elliðaárdalnum
Viljum sjá fjölskyldusvæði í Elliðaárdalnum. Stórt gott svæði með sléttu grasi sem hægt væri að nota til leikja. Borð og bekki til að setjast niður. Setja upp leiktæki sem að falla í umhverfið dalsins svipað og er upp í Björnslundi í Norðlingaholti.
Það er nóg af grasi þöktum flötum í borgarlandinu sem lítið og illa eru nýttar. Nóg kostar nú að slá og hirða grasið samt þó slíkum flötum sé ekki fjölgað. Fjölbreytni í náttúrunni gefur líka meira svigrúm til leikja heldur en flatneskjan.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation