Hjólastígar á Suðurgötu

Hjólastígar á Suðurgötu

Hvað viltu láta gera? Þrengja akreinar í báðar áttir á Suðurgötu, sunnan Hringbrautar og setja aðskilda hjólastíga í báðar áttir. Eins og staðan er í dag þá eru "hjólastígarnir" einungis málning á götunni og því ekki öruggir. Hvers vegna viltu láta gera það? Öryggi hjólandi vegfarenda hlýtur að vera í fyrirrúmi, sé ekki tilganginn í að hafa tvöfalda Suðurgötu á þessum tiltölulega stutta kafla.

Points

Vinsamlega hafið þetta eins og er, alls ekki þrengja Suðurgötu fyrir bílaumferð. Breyting kostar mikla peninga sem betur er varið í aðrar framkvæmdir. Hjólamerkingarnar eru fínar á Suðurgötu sjálfri, svokallaðar "sharrows" fyrir þá sem hjóla hratt og þeir sem fara hægar yfir geta notað gangstéttina meðfram götunni.

Ótrúlegt að það sé ennþá fjögurra akgreina hraðbraut í gegnum Háskólasvæðið og alveg upp við fjóra eða fimm leikskóla. Suðurgata er tímaskekkja sem hvetur til hraðaaksturs í miðju íbúahverfi.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í þá vinnu hjá samgöngudeild umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Það er löngu kominn tími á að fækka akgreinum. Bílaumferð er ekki mikil en þeim mun hraðari. Suðurgatan eins og er tekur gífurlega mikið pláss og er jafn breið og Vigdísarhús sem stendur við hliðina á því. Þannig sker hún sundur háskólasvæðið og gerir umhverfið almennt kuldalegra.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information