Kajak geymsla fyrir Ægissíðu

Kajak geymsla fyrir Ægissíðu

Hvað viltu láta gera? Ég vil fá læsta aðstöðu þar sem hægt er að geyma kajaka. Þetta gæti verið viðbót við aðstöðuna í Nauthólsvík, en mér þætti ennþá skemmtilegra ef þetta væri í vesturbænum. Aðstaða kajak klúbbsins í Geldinganesi er of langt í burtu og hún er frumstæð. Geymslan gæti verið hjá gömlu grásleppu skúrunum og þar er auðvelt að sjósetja þá. Hvers vegna viltu láta gera það? Vesturbærinn ætti að vera með tengsl við hafið, og kajak róður meðfram Ægissíðu gæti orðið hluti af daglegri útivist hér, eins og skokk, sjósund og hjólreiðar. Fáir vesturbæingar hafa aðgang að skúr til að geyma bát, miðað við aðra bæjarhluta.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Frábær hugmynd!

Við búum á eyju og því er stutt í sjóinn. Samt erum við ekki sterk í sjósporti. Ættum að gera meira til að ýta undir að það sé auðvelt fyrir okkur að stunda slíkt sport. Tek heilshugar undir þessa hugmynd. Það væri líka hægt að nýta svæðið og rampinn við flugskýli 3 eða svæðið við endastöð Strætó leið 12 (Skeljanes) undir slíka aðstöðu.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information