Útisturta og skiptiaðstaða við Ægisíðuna*

Útisturta og skiptiaðstaða við Ægisíðuna*

Hvað viltu láta gera? Útbúa útisturtur og aðstöðu til fataskifta i nálægð við skúrana við Ægisíðu, þar sem margir stunda sjósund Hvers vegna viltu láta gera það? Stuðlar að samveru og heilbrigði *Hugmynd sameinuð við: Aðstaða til sjóbaða við Ægissíðu: https://betrireykjavik.is/post/38890.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þessi var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmynd var aðlöguð í samráði við hugmyndahöfund felur í sér útisturtu og skiptiaðstöðu. Sauna krefst verulegs rekstrarkostnaðar og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Frábær hugmynd sérstakelga ef aðstaðan er látlaus og fellur vel inn í náttúruna. Kannski væri hægt að endurbyggja gömlu skúrana og gera aðstöðu þar?

Skapar slysahættu ekkert eftirlit, hvenær á að vera opið. Fólk kemur í misgóðu ástandi til stunda sjósund. Af hverju var heiti lækurinn í Nauthólsvík lokað fyrir mörgum árum (fyllerí).

Það væri geggjað að hafa góða sjósundsaðstöðu í Vesturbænum. Stuðlar að því að fleiri fari í sjósund.

Það mætti líka gjarnan nýta heita vatnið sem rennur í sjóinn þarna með smá laug við sjávarsíðuna, svipað og er í Nauthólsvík, nema smærra í sniðum.

Ég tel að látlaus aðstaða leiði til betri umgengni og sé auk þess hvetjandi fyrir fólk í hverfinu að stunda sjósund sér til heilsubótar.

Leyfum náttúrunni að njóta sín á Ægisíðunni. Það eru forréttindi að geta gengið um strandlengjuna án mikilla mannvirkja. Hversu margir mundu nota gufubað? Til staðar þarna eru nú þegar grásleppuskúrar, trana, járnbrautateinar í fjöru, búið er að setja upp ljósastaura, fiskalistaverk, minnismerki Þróttara, bekk og ruslatunnu og nýlega er búið að setja upp pall sem er eins og bátur í laginu. Það er fín sjósundsaðstaða rétt hjá í Nauthólsvíkinni og frábært að vera með gufubað þar.

Einmitt. Mjög góð hugmynd!

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information