Hleðslustöðvar fyrir raf- og hybrid bíla

Hleðslustöðvar fyrir raf- og hybrid bíla

Hvað viltu láta gera? Fá hleðslu stöðvar fyrir rafbíla sem er opin öllum. Það búa ekki allir svo vel að eiga sitt stæði til að leggja í og koma sér upp eigin hleðslustöð. Hvers vegna viltu láta gera það? Bæta aðstöðu til að hlaða bíla í hverfinu fyrir þá sem ekki hafa aðgang að eigin bílastæði.

Points

Það hafa ekki allir aðstöðu til að hlaða og engin almenningshleðslustöð vestan við Hofsvallagötu (að sundlauginni undantalinni, sem er verið að byggja núna). Því væri kjörið að auka hleðslustöðvum í Vesturbæ. Sem dæmi mætti nefna á gröndunum þá passa vel bílastæðin á borgarlandi við leikvöllinn á Skeljagranda, sem myndi þjónusta vel íbúa á öldu- seilu- og Skeljagranda eða að setja stöðvar við Grandaskóla.

Hvernig væri að nýta N1 stöðina á Ægissíðu í þetta fyrst það er á að loka/breyta henni (sá tal um það veir ekki hvort það sé rétt)

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Fjölgun og uppbygging hleðslustöðva í borginni er í ferli annars staðar í borgarkerfinu og verður hugmyndum um staðsetningar hleðslustöðva komið áfram sem ábendingum í þá vinnu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information