Mathöll á Eiðistorgi / Lappa upp á Eiðistorg

Mathöll á Eiðistorgi / Lappa upp á Eiðistorg

Hvað viltu láta gera? Skapa meira líf á Eiðistorgi. Margir litlir veitingastaðir líkt og á Hlemmi/Granda mathöll myndi vera mikil hverfisbót og gera svæðið mun meira aðlaðandi. Einnig mætti leyfa t.d. bændamarkaði til að bjóða upp á ferskar vörur beint frá bónda og listamarkaði um helgar. Þar sem Eiðistorg er nefnt í lýsingunni fyrir hverfið þá skráði ég það með þó svo að það teljist til Seltjarnarnes. Hvers vegna viltu láta gera það?

Points

Eiðistorg er ekki í Reykjavík. Betra að senda þessa hugmynd á Seltjarnarnesbæ því Reykjavík getur ekkert gert í þessu

Góð hugmynd en Eiðistorg er á Seltjarnarnesi 170

Eins og bent hefur verið á, er Eiðistorg á Seltjarnarnesi, en árið 2015 hélt bærinn hugmyndasamkeppni um nýja miðbæ: http://www.seltjarnarnes.is/frettirogutgefidefni/frettir/nr/9528 Hugmyndin sem sigraði er flott en það er ekki að sjá að neitt hafi verið gert til að vinna áfram með verkefnið. http://www.seltjarnarnes.is/frettirogutgefidefni/frettir/nr/9528 Það er þó rétt að hvetja Seltjarnarnes til að taka enn meiri þátt í svona uppbyggingu með rækilegri uppbyggingu á flottum bæjarkjarna.

Eiðistorg tilheyrir ekki Reykjavíkurborg. Heldur sveitarfélaginu Seltjarnarnesi og útsvarsgreiðendum þar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information