Hlaupa braut

Hlaupa braut

Hvað viltu láta gera? Innanhús og utanhús hlaupa braut fyrir almenning!! (Líkt og er í laugardalsholl sem er eingongu fyrir iðkenndur í frjálsum) Hvers vegna viltu láta gera það? Nágrannalond hafa gert hið sama eins og Noregur þar sem heilsuræktarmenning er mikil líkt og á Íslandi! Þau eiga bæði innanhús hlaupabraut og hlaupabraut úti opið fyrir almenning! Það væri mikill áhugi hèr að opna allavega innanhús hlaupa braut sem hentar vel fyrir veturinn, fyrir þá sem vilja hlaupa, bæta sig í hlaup eða sprettum.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hugmyndarinnar er ekki á opnu svæði á borgarlandi. Sambærileg hugmynd komst áfram í upptillingu sem felur í sér hlaupabraut utandyra. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Þetta hefði þurft fyrir löngu. K.R. frjálsar þurfa að fá lánaða aðstöðu til að æfa sig betur. Ætti ekki að vera þannig

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information