Battavelli í Vesturbæinn

Battavelli í Vesturbæinn

Hvað viltu láta gera? Setja upp alvöru battavelli í Vesturbæinn. Er við fjölmarga skóla í Reykjavík en einhverra hluta vegna ekki alvöru battavellir hér https://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skjol_svida/Sparkvellir___Reykjav_k_2012.pdf Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta hverfi er það eina í Reykjavík með engum battavelli á vegum Reykjavíkurborgar. Eini völlurinn í Vesturbænum er á KR svæðinu og í eigu félagsins. í öðrum hverfum eru battavellir reistir og reknir af borginni allt upp í 5 https://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skjol_svida/Sparkvellir___Reykjav_k_2012.pdf https://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skjol_utgefid_efni/itr_sparkvellir_2009.pdf

Points

Löngu komin tími á að gömlu grasvellirnir fái upplyftingu og verði gerðir af alvöru battavöllum

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún er í ferli annars staðar í borgarkerfinu. Síðustu ár hefur verið unnið að því að bæta við góðum sparkvöllum við skólana í Vesturbæ og verður hugmyndinni komið áfram sem ábendingu til ÍTR. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information