Göngum til móts við haf og fjöll

Göngum til móts við haf og fjöll

Hvað viltu láta gera? Göngu- og hjólabryggja út frá Ufsaklett. Um 500 – 1000 m löng bryggja, nógu breið svo hægt sé að hjóla og ganga. Á bryggunni verða líka bekkir til að slaka á og njóta og staðir til að veiða út frá. Bryggjan gæti farið beint út eða sveigt eitthvað aðeins en mikilvægast er að við endan sé fullkomið útsýni í átt að fjöllunum okkar. Staðurinn er valinn bæði þar sem hægt er að finna fullkomið útsýni og auk þess tenging við Ufsaklett, þar sem áður var veitt og verður vonandi veitt meira í framtíðinni. https://ferlir.is/ufsaklettur-selsvor-storasel/ Hvers vegna viltu láta gera það? Tenging við hafið, náttúruna og gamlan veiðistað Aðeins um staðinn... https://ferlir.is/ufsaklettur-selsvor-storasel/

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hugmyndin er ekki gerleg eða framkvæmanleg á umræddu svæði. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Þetta býður upp á mjög fjölbreytta möguleika, bryggjuball, tónleika, gjörninga, rómantískt stefnumót, enn meiri nálægð við hafið, veiðistaður, bekkir til að slaka á og fá vindinn í andlitið, notalegan göngutúr/hjólatúr og ...

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information