Færa hraðahindrun á Tómasarhaga og bæta hjólastíg

Færa hraðahindrun á Tómasarhaga og bæta hjólastíg

Hvað viltu láta gera? Laga hjólastíg sem liggur frá Dunhaga niður að Tómasarhaga. Færa hraðahindrun svo hún sé beint á móts við hjólastíg til að auka umferðaröryggi. Í dag eru þarna járngjarðir sem ætlað er að stoppa hjólafólk til að keyra ekki út í umferð þar sem þarna er engin gjangstétt. Járngjarðir hamla snjómokstur og götusópun og hafa tapað gula litnum svo þær eru orðnar hætta t.d. fyrir unga hjólreiðamenn sem sjá þær oft ekki. Hraðahindrunin er þegar orðin slöpp og mikið um að bíla reki niður þegar keyrt er yfir hana þrátt fyrir að þeir séu á löglegum hraða. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auka umferðaröryggi.

Points

MJÖG sammála! Þessi hraðahindrun eyðileggur bíla. Svo hefur þessi hjólahindrun alltaf pirrað mig. Stangirnar eru of nálægt hvor annarri. Einnig má benda á að lauf safnast þarna saman sem verða að risa drullumalli svo erfitt er að ferðast þarna um á veturnar. kv. Ein sem hefur búið þarna í 25 ár.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information