Borgarlínuleið í skjóli fyrir sjávarroki

Borgarlínuleið í skjóli fyrir sjávarroki

Hvað viltu láta gera? Forðast það í lengstu lög að Vesturbæingar þurfi að nálgast og bíða eftir væntanlegri Borgarlínu við Eiðisgranda. Leið D-2 um Hringbraut og Eiðisgranda hafði vinninginn í skýrslu COWI (2017) Borgarlína Recommendations - Screening Report. Í næsta áfanga vona ég að lega leiðarinnar verði skoðuð nánar, og að tekið verði til greina að Eiðisgrandi er mjög óvistleg gata að mínu mati fyrir gangandi vegfarendur þegar veðrið er ekki gott. Hvers vegna viltu láta gera það? Mikilvægt er að mínu mati að það sé ánægjuleg upplifun að nálgast Borgarlínustöðvar og að bíða þar eftir vagni. Ég er hræddur um að aðstæðum fyrir gangandi við Eiðisgranda verði ekki breytt og svo auðveldlega með endurgerð götunnar, enda stendur hún mót opnu hafi með háum byggingum á aðra hönd sem ég myndi ætla að hefði neikvæð áhrif á vindafar óháð hugsanlegum mótvægisaðgerðum.

Points

Er 101 ekki vesturbærinn alltíeinu?

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið er í öðru ferli í borgarkerfinu og felur ekki í sér eiginlega nýframkvæmd. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information