Laufsuga - laufahreinsun að hausti

Laufsuga - laufahreinsun að hausti

Hvað viltu láta gera? Að keypt verði og rekið tæki til að soga upp lauf sem falla af trjám í hverfum borgarinnar. Oft eru stór og gömul tré með miklar krónur í grónum hverfum. Á haustin safnast mikið af laufi á götur, í rennusteina og niðurföll og hindrar að vatn renni eðlilega til fráveitu. Hvers vegna viltu láta gera það? það væri til bóta að hluti laufa sem falla á haustin væru hreinsaðir upp af borginni til að minnka jarðvegsmyndun í niðurföllum og rennusteinum

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

það væri æskilegra að gera fyrst úttekt á dreifingu og magni haustlaufa og síðan skoða hvort það væru sjálfbærari lausnir fyrir hendi. Finnst ekki sanngjarnt eða raunhæft að dæma framtíðarkynslóðir til að eyða orku og tíma í að ryksuga lauf borgarinnar á hverju ári

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information