Gera gangstétt við göturnar suður og norður við Hótel Sögu

Gera gangstétt við göturnar suður og norður við Hótel Sögu

Hvað viltu láta gera? Í 30 ár hafa umferðargöturnar norður og suður af Hótel sögu (veit ekki hvað þær heita) verið þannig að gangandi vegfarandi verður að ganga á umferðargötunni. Það eru engar ganstéttir þar. Nú er búið að gera allar öryggisráðstafir við Birkimel en dáldið furðulegt að þeir sem ganga götur þessar út frá Melatorgi eiga bara að ganga úti á umferðargötu, sem er þó mjó og varla fyrir fram og tilbaka umferð. Gangandi, börn og fullorðnir ganga þarna á götunni í myrkri og slyddu og er ekki boðið upp á annað. Hvers vegna viltu láta gera það? Nóg er nú komið af bílabrautum og hjólastígum. Tími til að huga að gangstéttum þar sem þær hafa aldrei verið

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information