Að einstefnan á götum Mela stefni í sitthvora átt.

Að einstefnan á götum Mela stefni í sitthvora átt.

Hvað viltu láta gera? Að göturnar Malarnir sem liggja frá Hringbraut að Hagamel fái einstefnuakstursleiðir sem stefni í sitt hvora átt. Það er að ef einn liggur vestur austur sé sú næsta austur vestur og svona kolla af kolli. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég vandist þessu fyrirkomulagi í miðaldabæ í Hollandi. Þröngar götur eru sitt á hvað, séu þær einstefnugötur. Mér finnst líka leiðinlegt að til að nýta mér verslanir úti á Granda, mitt nánast umhverfi þarf ég að aka af Espimel niður á Hagamel og síðan Hofsvallagötu upp á Hringbraut. Óþarfa mengandi lykkja upp á hvern dag.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information