Tvær Styttur af Kanye West

Tvær Styttur af Kanye West

Hvað viltu láta gera? Ég vill láta reisa tvær styttur af Kanye fyrir utan ísbúðvesturbæjar. Hvers vegna viltu láta gera það? Kanye er King

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins Hverfið mitt hefur metið þessa hugmynd og komist að þeirri niðurstöðu að hún sé ekki tæk* til kosningar í Hverfið mitt. Þegar listaverk eru reist í borgarlandinu er almennt haft að leiðarljósi að um höfundarverk listamanna sé að ræða og horft til þess að fleiri en einn listamaður hafi tækifæri til að koma hugmyndum sínum um útfærslu á framfæri. Eins og tillagan liggur fyrir hefur hún ekki listrænt gildi og er ekki sett fram sem listræn áskorun. Nýjar hefðbundnar brjóstmyndir/styttur eru fátíðar nú á 21. öld og hefur heldur verið farin sú leið að leita til listamanna um að skapa verk til heiðurs nafngreindu fólki sem eru táknræn fyrir ævi þeirra eða framlag til samfélagsins. Almennt er ástæða til að árétta að minnisvarðar um þjóðþekkta einstaklinga eru nokkrir í borgarlandinu og þá flestir höfundarverk listamanna 20. aldar. Sérstök tengsl Kanye West við Vesturbæ eru lítil sem engin og felast aðeins í nafninu West. Án frekari rökstuðnings verður ekki séð að ástæða sé til þess að standa fyrir því að stytta sem þessi verði menningarlegt tákn Vesturbæjar og jafnvel Íslands Þegar um er að ræða styttur eða minnisvarða um tiltekinn einstakling koma einnig lögfræðileg álitamál til skoðunar sem flækja málið enn frekar. Slík verk fela í sér að borgin notfæri sér nafn, ímynd eða ótvíræð auðkenni einstaklings. Í einhverjum tilfellum getur það stangast á við lög, t.d réttinn til friðhelgi einkalífs, sjónarmið um vernd æru manna og jafnvel reglur um vernd vörumerkja. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Besta Hugmynd sem ég hef séð í lángan tíma

Góð hugmynd, Kanye er King

þetta mun gefa bænum von um betri framtíð

Það er náttúrlega glórulaust að hafa ekki styttu af Ye😌

Besta Hugmynd sem ég hef séð í lángan tíma

þetta er frábær hugmind

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information