A)Minningargarður - B) fleiri bekkir í vesturbæinn

A)Minningargarður - B) fleiri bekkir í vesturbæinn

Hvað viltu láta gera? A Ég óska eftir því að komið verði upp minningar garði um þá sem létust í brunanum á Bræðraborgarstíg 1. B) Settir verði upp fleiri bekkir sem víðast um vesturbæinn Hvers vegna viltu láta gera það? A) Það yrði hlýleg og falleg vin þar sem hægt væri að hitta vinkonur og ræða hinstu rök tilverunnar, lífs og dauða og daginn og veginn B) Bekki svo við vinkonurnar getum sest og hvílst á leið til og frá garðinum

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem minningargarður er ekki framkvæmanlegur á umræddu svæði sökum plássleysis. Önnur hugmynd um fjölgun bekkja komst áfram í uppstillingu og mun standa til boða við uppstillingu kjörseðils. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information