Sólseturstorg

Sólseturstorg

Hvað viltu láta gera? Að útbúa svæði við og á varnargarðinum við Ánanaust þar sem hægt er að setjast niður og horfa á sólarlagið. Einskonar torg sem er framhald af varnargarðinum úr sama grófa efni, þar sem gert er ráð fyrir að fólk geti setið saman eitt eða í hópum tekið myndir osvfr. Hugsa ætti "torgið" sem eitt heilstætt listaverk þar sem arkitektar og myndlistarmenn ynnu saman frá grunni. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég fer oft þarna um og hef tekið eftir að oft safnast fólk , stundum allt að 20 manns á sama svæði fyrir aftan bensínstöðina og sorpu á sumarkvöldum til þess að fylgjast með sólsetrinu.. það er ekki gert ráð fyrir fólkinu í hönnun umhverfissins. það vantar uppá öryggi ásýnd og notkunarmöguleikar eru vannýttir.

Points

Falleg hugmynd og fullkomið nafn á torgi

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna eða valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hugmyndin fer áfram sem ábending til Faxaflóahafna. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information