Ljósastaurar í gömlum stíl (ein hugmynd á mynd)

Ljósastaurar í gömlum stíl (ein hugmynd á mynd)

Hvað viltu láta gera? Skipta út ljósastaurum í vesturbæ, setja lægri í svipuðum stíl og er t.d. við og í kringum Hólavallarkirkjugarð. Þá má einnig milda birtuna og setja LED lýsingu. Þannig má bæta ásýndina spara orku og horfa til vistvænari framtíðar í götulýsingu. Hvers vegna viltu láta gera það? Gerir ásýnd gatna í vesturbænum fallegri og stuðlar að vistvænni til framtíð.

Points

Þessir ljósastaurar eru fallegir og gefa frá sér hlýja birtu og myndu sannarlega bæta ásýnd hverfisins.

Gefur fallegt yfirsýn

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Góð hugmynd og gerir fallegan svip á hverfið

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information